Nýtt félag
með ríka sögu

Skyggnir er nýtt eignarhaldsfélag sem hefur starfsemi árið 2024 en byggir á gömlum og traustum grunni.  Sögu Skyggnis má rekja allt aftur til ársins 1899, frá skrifstofuvélum og fyrstu tölvunum á Íslandi. Forverar Skyggnis hafa verið leiðandi afl tækniframfara og rekið tækniinnviði Íslendinga allar götur síðan undir merkjum IBM, Nýherja, Applicon, Tempo, TMSoftware, og nú síðast Origo.

Við nýtum þennan trausta grunn til að styðja fyrirtækin okkar til að mæta þörfum viðskiptavina sinna í síbreytilegum heimi.

Það er hlutverk Skyggnis að koma auga á tækifæri til framfara og þróunar í íslenskri upplýsingatækni, hvort sem slík tækifæra verða til innan eða utan eignasafns Skyggnis.  Skyggnir styður félög í sinni eigu á vegferð framfara, vaxtar og umbreytinga, í samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila og fjárfesta. Við horfum stolt á eftir félögum okkar inn í nýtt eignarhald, ef sá tími kemur.